Dolce Vita Shanta

– Svart
– Ekta leður að utan ásamt teygju
– Textíll að innan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– 7,5 cm hæll

Geggjuð ökklastígvél í smá kúrekastíl. Hællinn er stöðugur og góður og táin er fallega mjó. Skórnir eru renndir að aftan með grófum silfur rennilás og þeir eru aðsniðnir um ökklann.

Þessi vara er ekki til á lager og þvi ófáanleg eins og er.

Dolce Vita er nýjasta merkið okkar í Apríl en við erum einstaklega spenntar að kynna ykkur fyrir þessu merki.
Það á rætur sínar að rekja til Lower East Side í New York árið 2001 þegar að Nick Lucio and Van Lamprou settu það á laggirnar en merkið er nefnt eftir bar á Ítalíu þar sem að þeir félagar voru staddir nokkru áður og skrifuðu það niður á servéttu.
Dolce Vita sækir innblástur í sterkar konur sem að umlykja okkur, list og tónlist og eru hönnuðurnir alltaf trúir merkinu. Þó að skórnir séu oftar en ekki stílhreinir þá eru þeir samt sérstakir á sinn hátt og standa út úr. Efnin, smáatriðin og hönnunin setja brag sinn á skóna. Sjón er sögu ríkari.

Stærð

36, 37, 38, 39, 40, 41