Absence of Colour er minimalískt fatamerki stofnað í Austur-Lundúnum árið 2013 af Hebu Hallgrímsdóttur. Eins og nafnið gefur til kynna er fatalínan ekki innblásin af litum en svart og hvítt er einkennismerki merkinsins.
Hönnuðir AOC sækja innblástur í minimalískar norrænar rætur til þess að skapa einstaka hönnun á viðráðanlegu verði. Flíkurnar frá AOC eru ferskar með flottan stíl þar sem hugsað er út í hvert smáatriði.
AOC hefur notið mikilla vinsælda erlendis og reka þau tvær verslanir í London og eina í New York ásamt því að vera í Topshop víðsvegar um heiminn.
AOC Elsa Dress
– svart /hvítt
– 100% bómull / polyester
– Kaldur þvottur
Léttur og afslappaður kjóll sem að er fullkominn fyrir sumarið, hnepptur að framanverðu efst. Hvíta efnið er bómull og svarta efnið polyester og skapa efnin áferðar andstæður þegar að þau mætast. Skemmtileg og öðruvísi hönnun.
Stærðartafla
XS – 4 / 32
S – 6-8 / 34 – 36
M – 10 – 12 / 38 – 40
L – 14 – 16 / 42 – 44
XL – 18 / 46
Stærð | S, M, L |
---|