Ten Points Cecilia

– Svart
– Ekta leður að innan og utan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Venjuleg stærð
– Rúmlega 5 cm hæll

Æðislegir og töffaralegir skór frá Ten Points. Þessir skór eru fullkomnir fyrir íslenska veðráttu! Leðurfóðraðir með þykkum gúmmísóla sem gerir þá einstaklega mjúka og þægilega. Reimaðir með rennilás að innanverðu. Grófa sniðið er mjög flott og passar við allt, kjóla og buxur.

Þessi vara er ekki til á lager og þvi ófáanleg eins og er.

Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast lengi og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt að bjóða þetta frábæra merki á Íslandi.

Stærð

36, 37, 38, 39, 40, 41