Dolce Vita á rætur sínar að rekja til Lower East Side í New York árið 2001 þegar að Nick Lucio and Van Lamprou settu það á laggirnar en merkið er nefnt eftir bar á Ítalíu þar sem að þeir félagar voru staddir nokkru áður og skrifuðu það niður á servéttu.
Dolce Vita sækir innblástur í sterkar konur sem að umlykja okkur, list og tónlist og eru hönnuðurnir alltaf trúir merkinu. Þó að skórnir séu oftar en ekki stílhreinir þá eru þeir samt sérstakir á sinn hátt og standa út úr. Efnin, smáatriðin og hönnunin setja brag sinn á skóna.
Dolce Vita Arlene
– Svart
– Ekta leður að utan
– Fóður að innan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Stórar stærðir
– Hæll 3 cm
Fallegar mokkasíur sem að ganga við allt. Mjög léttar með smá hæl, silfur járn upp við hæl. Tungan nær vel upp á rist og táin er fallega mjó. Croco áferðin á leðrinu setur punktinn yfir i-ið.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|