Skilmálar fyrir vefverslun

Apríl skór ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis og á Facebook síðu Apríl skór. Skilmálar þessir gilda um allar pantanir hjá Apríl skór og á Facebook síðu Apríl skór.

Afhending vöru:

Pantanir eru sendar á næsta afhendingarstað Eimskips, í box eða heim að dyrum með TVG Express // Við afgreiðum pantanir næsta virka dag eftir að greiðsla hefur borist. Athugið að innanlandspóstur getur tekið allt að 3 daga að berast. Allar sendingar eru með rekjanlegu sendingarnúmeri frá TVG Express.

Ef vara er ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Pöntunum er dreift af TVG Express og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar TVG Express um afhendingu vörunnar.

Skilafrestur:

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Skilafresturinn tekur gildi þegar varan er afhent. Kvittun fyrir vörukaupunum er skilyrði. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef skila eða skipta á pöntun hjá Apríl skór, mikilvægt er að senda vöru sem á að skila í heimkeyrslu til okkar á Garðatorg 6 svo að hún skili sér hratt og örugglega. Útsöluvörum/tilboðsvörum fæst skipt en ekki skilað. Vinsamlega hafið samband á april@aprilskor.is ef frekari spurningar vakna.

Endursendingar skal senda í heimkeyrslu:

Apríl skór ehf

Garðatorg 6

210 Garðabær

s: 551 5021 

Verð:

Athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Trúnaður:

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Greiðsla fer fram með millifærslu á reikning Apríl skór, á öruggri greiðslusíðu SaltPay, greiðslugátt Netgíró, Síminn Pay og greiðslugátt Pei.

SaltPay sér um alla meðhöndlun á kreditkortum og kortaupplýsingum.

Þessir skilmálar gilda aðeins fyrir netverslun.