Musse & cloud er spænskt skómerki sem að býður upp á leðurskó á góðu verði án þess að láta það bitna á þægindunum. Skórnir eru einstaklega mjúkir og þægilegir og eru hannaðir og framleiddir á Spáni. Hönnunin er ávallt klassísk án þess líkjast öðrum skóm þar sem að þau nota smáatriði til þess gera skóna öðruvísi. Musse & cloud eru óhrædd við að nota skemmtilega liti sem að við auðvitað elskum.
Musse & cloud Karan
– Brúnt
– Ekta leður að utan
– Fóður að innan
– Mjúkt innlegg
– Gúmmísóli
– Venjuleg númer
– Hæll 8 cm
Klassísk ökklastígvél með teygjum í hliðunum og platform. Sólinn er 3 cm og eru þeir því ekki mjög háir fyrir fótinn. Fallegt brúnt leður með snákamunstri. Auðvelt að komast í og úr.