Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast lengi og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt að bjóða þetta frábæra merki á Íslandi.
Ten Points New Mercury
32.990kr.
– Svart
– Krómfrítt leður að innan og utan
– Leður- og gúmmísóli
– Mjúkt leðurinnlegg
– Venjulegar stærðir
– 2,8 cm hæll
Fallegir og einstaklega vandaðir leðurskór frá Ten Points. Vinnsla á krómfríu leðri felst i umhverfisvænni framleiðsluaðferðum sem skilar sér í fallegri og lifandi áferð í hverju pari. Skórnir eru sérstaklega mjúkir að ganga á og hannaðir út frá háum viðmiðum þegar kemur að þægindum. Gott pláss er í tánni, þrengja þeir hvergi að og eru með reimum.