Musse & cloud er spænskt skómerki sem að býður upp á leðurskó á góðu verði án þess að láta það bitna á þægindunum. Skórnir eru einstaklega mjúkir og þægilegir og eru hannaðir og framleiddir á Spáni. Hönnunin er ávallt klassísk án þess að líkjast öðrum skóm þar sem að þau nota smáatriði til þess gera skóna öðruvísi. Musse & cloud eru óhrædd við að nota skemmtilega liti sem að við auðvitað elskum.
Musse & cloud Erica
– Svart
– Ekta leður að utan
– Mjúkt fóður að innan
– Leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Venjuleg númer
– Sóli 4,5 cm
Ótrúlega töff ökklastígvél fyrir veturinn. Þykkur sóli og rennilás á hliðinni. Einnig eru reimar og rennilás að framan sem að hægt er að leika sér með, hægt er að taka rennilásinn af og hafa þá bara venjulega með reimum.