Hispanitas er spænskt fjölskyldufyrirtæki sem að var stofanað 1925 og framleiðir handgerða skó og töskur á Spáni. Fyrirtækið fékk nafnið Hispanitas árið 2005 og er selt í yfir 50 löndum í dag. Hispanitas einbeita sér mjög að unmhverissjónarmiðum og kaupa allt hráefni í nágrenni sínu sem að er allt með umhverfisvænan stimpil og framleiða allt í verksmiðjunni sinni í Alicante. Þetta finnst okkur mikilvægt og við erum spennt að bjóða svona flott merki með háleit umhverfismarkmið og svona góða og þægilega skó í þokkabót.
Hispanitas Tokyo
– Svart
– Ekta leður
– Mjúkt triflow innlegg
– Gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– 7 cm hæll
Æðisleg ökklastígvél með þægilegum hæl og 2 cm platformi. Þau eru ótrúlega stílhrein og falleg á fæti, ganga bókstaflega við allt og eru lóka svakalega þægileg. Góður gúmmísóli sem að er ótrúlega mjúkur og sveigjanlegur. Hið fullkomna stígvél sem að hægt er að nota endalaust.