Musse & cloud er spænskt skómerki sem að býður upp á leðurskó á góðu verði án þess að láta það bitna á þægindunum. Skórnir eru einstaklega mjúkir og þægilegir og eru hannaðir og framleiddir á Spáni. Hönnunin er ávallt klassísk án þess að líkjast öðrum skóm þar sem að þau nota smáatriði til þess gera skóna öðruvísi. Musse & cloud eru óhrædd við að nota skemmtilega liti sem að við auðvitað elskum.
Musse & cloud Cross
– Svart
– Ekta leður að utan
– Fóður að innan
– Leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Venjuleg númer
– Hæll 4 cm
Sjúklega flott biker stíglvél með breiðum hæl. Táin er kassalaga og það er spenna um ökklann og lítil spenna efst, rennilás að innanverðu. Ótrúlega flott stígvél sem að er hægt að nota endalaust.