Audley er vandað merki, framleitt í skóverksmiðju á Spáni sem að er búin að vera í eigu sömu fjölskyldu síðan hún var stofnuð 1940. Árið 1988 fæddist Audley merkið og hefur öðlast fótfestu í Evrópu og víðar. Skórnir hafa ákveðinn persónuleika og er hugað að öllu við hönnun og framleiðslu þeirra, svo sem þægindum, stíl og notagildi.
Hönnuðir Audley styðjast við Bauhaus stefnuna í hönnun sinni sem að hefur alltaf einkennt merkið og sameinar hönnun, gæði og náttúru í skóm sem að eru hannaðir af konum fyrir konur.
Audley
– Svart / köflótt efni
– Ekta leður að innan og utan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Mjúkur hrágúmmísóli
– Aðeins rúmar stærðir
– 5,5 cm hæll
Hér höfum við hina fullkomnu mjúku ökklaskó sem að ganga við allt og eru eins og að ganga á skýi. Tímalaus hönnun með breiðum og stöðugum hæl, mjúkt leður og mjúkur hrágúmmísóli. Skemmtilegt twist með köflótta efninu. Þessir klikka ekki!