Audley er vandað merki, framleitt í skóverksmiðju á Spáni sem að er búin að vera í eigu sömu fjölskyldu síðan hún var stofnuð 1940. Árið 1988 fæddist Audley merkið og hefur öðlast fótfestu í Evrópu og víðar. Skórnir hafa ákveðinn persónuleika og er hugað að öllu við hönnun og framleiðslu þeirra, svo sem þægindum, stíl og notagildi.
Hönnuðir Audley styðjast við Bauhaus stefnuna í hönnun sinni sem að hefur alltaf einkennt merkið og sameinar hönnun, gæði og náttúru í skóm sem að eru hannaðir af konum fyrir konur.
Audley Bibo
38.990kr.
– Svart
– Ekta leður að innan og utan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Mjúkur gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– 3 cm hæll
Svakalega flottir og töff skór með lágum hæl, rúnaðri tá og ristabandi. Svart hálfglans leður og studs á hælnum og á ristabandinu sem að gera skóna alveg klikkaðslega flotta. Þessir poppa sko upp dressið, líka flottir með fallegum sokkum.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|