Audley er vandað merki, framleitt í skóverksmiðju á Spáni sem að er búin að vera í eigu sömu fjölskyldu síðan hún var stofnuð 1940. Árið 1988 fæddist Audley merkið og hefur öðlast fótfestu í Evrópu og víðar. Skórnir hafa ákveðinn persónuleika og er hugað að öllu við hönnun og framleiðslu þeirra, svo sem þægindum, stíl og notagildi.
Hönnuðir Audley styðjast við Bauhaus stefnuna í hönnun sinni sem að hefur alltaf einkennt merkið og sameinar hönnun, gæði og náttúru í skóm sem að eru hannaðir af konum fyrir konur.
Audley Leia
– Svart
– Ekta leður að innan og utan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Mjúkur gúmmísóli
– Aðeins rúmar stærðir
– 6,5 cm hæll
Einstaklega fallegir hælaskór með bandi yfir ristina. Táin, hællinn og bandið eru úr venjulegu leðri og restin er úr leðri með litlu glansandi munstri í. Svakalega sparilegir og fallegir á fæti. Þægilegir eins og allir skór frá Audley, tilvaldir við jólakjólinn.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|