Audley er vandað merki, framleitt í skóverksmiðju á Spáni sem að er búin að vera í eigu sömu fjölskyldu síðan hún var stofnuð 1940. Árið 1988 fæddist Audley merkið og hefur öðlast fótfestu í Evrópu og víðar. Skórnir hafa ákveðinn persónuleika og er hugað að öllu við hönnun og framleiðslu þeirra, svo sem þægindum, stíl og notagildi.
Hönnuðir Audley styðjast við Bauhaus stefnuna í hönnun sinni sem að hefur alltaf einkennt merkið og sameinar hönnun, gæði og náttúru í skóm sem að eru hannaðir af konum fyrir konur.
Audley Telma
– Svart
– Ekta leður að innan og utan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Mjúkur gúmmísóli
– Aðeins rúmar stærðir
– 6 cm hæll
Alveg geggjuð ökklastígvél með smá kúreka svip. Þvertá, millihár hæll og spenna í báðum hliðum. Skórnir eru renndir að aftan og eru svakalega þægilegir. Þessir slá í gegn við öll dress, ekki spurning!
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|