Audley Telma

– Beige / brúnt
– Ekta leður að innan og utan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Mjúkur gúmmísóli
– Aðeins rúmar stærðir
– 6 cm hæll

Skemmtileg og öðruvísi stígvél með teygju. Skórnir eru úr burstu leðri og er áferðin því mött og falleg, passar ótrúlega vel við rifflaða teygjuna. Þvertá og millihár þægilegur hæll, hællinn er dökkbrúnn og sömuleiðis sólinn sem að setur enn skemmtilegri svip á skóna. Takmarkað magn og tilvalið tækifæri til að næla sér í öðruvísi skó.

Þessi vara er ekki til á lager og þvi ófáanleg eins og er.

Audley er vandað merki, framleitt í skóverksmiðju á Spáni sem að er búin að vera í eigu sömu fjölskyldu síðan hún var stofnuð 1940. Árið 1988 fæddist Audley merkið og hefur öðlast fótfestu í Evrópu og víðar. Skórnir hafa ákveðinn persónuleika og er hugað að öllu við hönnun og framleiðslu þeirra, svo sem þægindum, stíl og notagildi.
Hönnuðir Audley styðjast við Bauhaus stefnuna í hönnun sinni sem að hefur alltaf einkennt merkið og sameinar hönnun, gæði og náttúru í skóm sem að eru hannaðir af konum fyrir konur.

Stærð

36, 37, 38, 39, 40, 41