Audley er vandað merki, framleitt í skóverksmiðju á Spáni sem að er búin að vera í eigu sömu fjölskyldu síðan hún var stofnuð 1940. Árið 1988 fæddist Audley merkið og hefur öðlast fótfestu í Evrópu og víðar. Skórnir hafa ákveðinn persónuleika og er hugað að öllu við hönnun og framleiðslu þeirra, svo sem þægindum, stíl og notagildi.
Hönnuðir Audley styðjast við Bauhaus stefnuna í hönnun sinni sem að hefur alltaf einkennt merkið og sameinar hönnun, gæði og náttúru í skóm sem að eru hannaðir af konum fyrir konur.
Audley Telma
– Svart
– Ekta leður að innan og utan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– 7 cm hæll
Falleg ökklastígvél með örlítið kassalaga tá. Sniðið er æðislegt og er leðrið í nokkrum lögum, passa frábærlega bæði við buxur og sokkabuxur. Hællinn er breiður, stöðugur og passlega hár. Geggjaðir skór sem að er hægt að nota við allt en skera sig samt úr með fallegri hönnun sinni.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|