Tom Romeo stofnaði Bearpaw árið 2001 eftir að hafa mætt birni við Lake Tahoe í Ameríku, björninn horfði í augun á honum og hélt svo leið sinni áfram. Í dag er Bearpaw gróið skómerki í Ameríku og byrjað að festa rætur í Evrópu. Skórnir eru einstaklega góðir og léttir og búið er að verja þá með NeverWet® technology.
Bearpaw Alyssa
19.990kr.
– Ljósbrúnt
– Ekta rúskinn að utan
– Mjúkt ullar innlegg
– Léttur gúmmísóli
– Frekar litlar stærðir
– 2 cm sóli
Bearpaw skórnir eru einstaklega þægilegir og auðvelt að hendast í og úr þeim. Þessi týpa er millihá og er sú vinsælasta. Það er góður hælkappi í skónum sem að krumpast ekki strax eins og gjarnan má gerast á svona skóm og einnig er búið að verja rúskinnið með tækni til að verjast betur bleytu. Ullin að innan er mjög kósý og margir nota þessa skó sem inniskó á veturna.