25.990kr.
– Svart
– Ekta leður að innan og utan
– Leðurinnlegg
– Gúmmí óli
– Venjulegar stærðir
– Hæll 6,5 cm
Camper kunna að gera flotta skó sem að fólk tekur eftir. Þessir eru æðislegir, við erum alveg sjúkar í þá! Táin er skáskorin og slaufan að framan er æðisleg. Hællinn er mjög þægilegur og stöðugur, band sem að fer fyrir aftan hæl og geggjaðir krumpur í leðrinu allan hringinn.
Camper er spænskt merki stofnað árið 1975, það þekkja flestir Camper enda einstakt merki og áberandi hönnun. Camper skórnir eru seldir víða um heim, þeir eru mjög vinsælir í Japan og eru þekktir fyrir þægindi, litagleði og óhefðbundna hönnun. Fyrir okkur er Camper listaverk og þau gera reglulega línur í samstafi við arkitetúra, hönnuðui og listamenn sem kemur ávallt skemmtilega út. Camper hefur verið í sömu fjölskyldunni frá upphafi, Fluxa fjölskyldunni, og er framkvæmdastjóri Camper núna langalangafa barn stofnandans. Við erum mjög spenntar að kynnast Camper betur og bjóðum Camper velkomin í Apríl fjölskylduna.
| Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
|---|