17.990kr.
– Brúnt / beige / hvítt
– Ekta leður að utan
– Leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Venjuleg númer
– Sóli 2,5 cm
Uppáhalds sniðið okkar frá Coolway, klassískt með rúnaðri tá nema þessir eru með opnum hæl. Saumarnir í skónum eru svo flottir og það koma ljósar blúndu reimar og ljósar venjulegar reimar með þessum. Þeir eru með mjög ljósu leopard mustri sem að er mjög flott, ekki of áberandi.
Við byrjuðum að selja Coolway árið 2019 en þá voru þau mjög sterk í vegan skóm. Coolway er dótturmerki Musse & cloud og hafa þau skipt algjörlega um stefnu og farið alfarið yfir í strigaskó. Við erum spenntar að fylgjast með þessu flotta merki sem að er að stækka hratt og orðið mjög vinsælt víða um heim. Strigaskórnir eru oftar en ekki mjög litríkir og skemmtilegir, yfirleitt koma auka reimar með skónum í skemmtilegum lit sem að breytir þeim algjörlega. Coolway strigaskórnir eru mjúkir og þægilegir og einstaklega töff.
| Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
|---|