18.990kr.
– Ljósblátt/ hvítt / bleikt
– Ekta leður og efni að utan
– Leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Lítil númer
– Sóli 2 cm
Fallegt snið með brúnum gúmmísóla. Táin er pen og mjög flott og hælkappinn líka skemmtilegur í öðrum lit. Sætir og nettir stigaskór.
Við byrjuðum að selja Coolway árið 2019 en þá voru þau mjög sterk í vegan skóm. Coolway er dótturmerki Musse & cloud og hafa þau skipt algjörlega um stefnu og farið alfarið yfir í strigaskó. Við erum spenntar að fylgjast með þessu flotta merki sem að er að stækka hratt og orðið mjög vinsælt víða um heim. Strigaskórnir eru oftar en ekki mjög litríkir og skemmtilegir, yfirleitt koma auka reimar með skónum í skemmtilegum lit sem að breytir þeim algjörlega. Coolway strigaskórnir eru mjúkir og þægilegir og einstaklega töff.
| Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
|---|