Dolce Vita er nýjasta merkið okkar í Apríl en við erum einstaklega spenntar að kynna ykkur fyrir þessu merki.
Það á rætur sínar að rekja til Lower East Side í New York árið 2001 þegar að Nick Lucio and Van Lamprou settu það á laggirnar en merkið er nefnt eftir bar á Ítalíu þar sem að þeir félagar voru staddir nokkru áður og skrifuðu það niður á servéttu.
Dolce Vita sækir innblástur í sterkar konur sem að umlykja okkur, list og tónlist og eru hönnuðurnir alltaf trúir merkinu. Þó að skórnir séu oftar en ekki stílhreinir þá eru þeir samt sérstakir á sinn hátt og standa út úr. Efnin, smáatriðin og hönnunin setja brag sinn á skóna. Sjón er sögu ríkari.
Dolce Vita Coltyn
– Svart
– Ekta leður að innan og utan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– 7 cm hæll
Æðisleg stílhrein og tímalaus ökklastígvél sem að passa við allt. Áferðin á leðrinu gerir heilmikið og er leðrið örítið glansandi. Hællinn er stöðugur og góður í smá kúrekastíl og táin er fallega mjó. Skórnir eru renndir að aftan með silfur rennilás.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|