15.990kr.
– Ljósbleikt / rautt / margir litir
– 98% bómull, 2% teygja
– Kaldur þvottur
Svo sæt þunn peysa með geggjuðum prjónuðum ermum. Hátt hálsmál, góð teygja og geggjuð litasamsetning. Free People eru snillingar í að gera svona flottan og öðruvísi fatnaði sem að samt gengur upp, áferðir og andsæður spila ótrúlega vel saman í þessari einstöku flík.
Um 1970 stofnaði maður að nafni Dick Hayne búðina Free People í Philadelpia. Búðin varð strax vinsæl og innan skamms opnaði hann aðra búð og breytti þá nafninu á búðunum í Urban Outfitters.
Með tímanum fór konan hans Meg að huga að línu fyrir Urban Outfitters sem að varð gífurlega vinsæl og ákváðu þau hjón að selja línuna áfram og var þá blásið aftur lífi í nafnið Free People.
Free People leggja áherslu á gæði og öðruvísi hönnun, þau eru óhrædd við að nota liti og textíl og kunna betur en flestir að blanda þessu tvennu saman svo að það virki vel og er það einmitt það sem að einnkennir þau best. Hönnunin er afslöppuð og frjáls og laus við alla áreynslu.
| Stærð | XS, S, M, L |
|---|