Free People Pixie Tee

9.990kr.

– Dökkgrátt
– 95% bómull, 5% teygja
– Kaldur þvottur

Æðislegur rúllukragabolur úr geggjuðu riffluðu efni. Svo flott hvernig saumarnir eru á röngunni og eru dekkri, smá vintage fílingur. Bolurinn er rúnaður að neðanverðu og með lítilli klauf í ermunum.

Mælingar á stærð S:

bjóst 62 cm
lengd á ermum 74 cm
lengd 61 cm

Fjöldi

Um 1970 stofnaði maður að nafni Dick Hayne búðina Free People í Philadelpia. Búðin varð strax vinsæl og innan skamms opnaði hann aðra búð og breytti þá nafninu á búðunum í Urban Outfitters.
Með tímanum fór konan hans Meg að huga að línu fyrir Urban Outfitters sem að varð gífurlega vinsæl og ákváðu þau hjón að selja línuna áfram og var þá blásið aftur lífi í nafnið Free People.
Free People leggja áherslu á gæði og öðruvísi hönnun, þau eru óhrædd við að nota liti og textíl og kunna betur en flestir að blanda þessu tvennu saman svo að það virki vel og er það einmitt það sem að einnkennir þau best. Hönnunin er afslöppuð og frjáls og laus við alla áreynslu.

Stærð

S, M, L