29.990kr.
– Hvítt / svart
– Ekta leður
– Mjúkt leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– 4 cm hæll
Æðislegir hælaskór frá Hispanitas. Svakalega mjúkir og þægilegir með þægilegum hæl. Rúnuð lokuð tá en opnir í hælinn, band fyrir aftan hæl og hekluð teygja yfir rist sem að heldur vel við fótinn. Svo æðislegir fyrir vorið og sumarið og einstaklega fallegir á fæti.
Hispanitas er spænskt fjölskyldufyrirtæki sem að var stofanað 1925 og framleiðir handgerða skó og töskur á Spáni. Fyrirtækið fékk nafnið Hispanitas árið 2005 og er selt í yfir 50 löndum í dag. Hispanitas einbeita sér mjög að unmhverissjónarmiðum og kaupa allt hráefni í nágrenni sínu sem að er allt með umhverfisvænan stimpil og framleiða allt í verksmiðjunni sinni í Alicante. Þetta finnst okkur mikilvægt og við erum spennt að bjóða svona flott merki með háleit umhverfismarkmið og svona góða og þægilega skó í þokkabót.
| Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
|---|