HOFF var stofnað á Spáni árið 2016 og var markmið þeirra að skapa gæðaskó sem að eru einnig falleg hönnun og á sanngjörnu verði. Það var hugsað sem tískumerki byggt á áreiðanleika sem megin gildi.
HOFF hefur skapandi og hnattrænan karakter sem skilgreindur er í hönnun sinni. Leiðin til að tjá það er innblásin af táknrænum stöðum í heiminum til að skapa einstaka hönnun sem að fangar anda hvers staðar fyrir sig. Hönnuðir HOFF sækja innblástur til hinna ýmsu borga og hverfa alls staðar í heiminum og má oft sjá kennileiti þeirra undir sólanum á skónum.
Frábært merki sem að gefur hverju skópari sögu í hönnun sinni og sköpun. Við erum ótrúlega ánægð að bjóða upp á HOFF á Íslandi.
HOFF Mocasín School
22.990kr.
– Svart
– Ekta leður að utan
– Fóður að innan
– Mjúkt foam innlegg (hægt að fjarlægja)
– Gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– 3 cm hæll
Geggjaðar mokkasíur frá okkar uppáhalds HOFF. Þær eru svakalega þægilegar eins og allir strigaskórnir frá HOFF. Háglansinn stendur alltaf fyrir sínu og gerir heilmikið fyrir heildarútlitið. og svo er logo-ið aftan á hælnum svo töff.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|