Musse & cloud er spænskt skómerki sem að býður upp á leðurskó á góðu verði án þess að láta það bitna á þægindunum. Skórnir eru einstaklega mjúkir og þægilegir og eru hannaðir og framleiddir á Spáni. Hönnunin er ávallt klassísk án þess að líkjast öðrum skóm þar sem að þau nota smáatriði til þess gera skóna öðruvísi. Musse & cloud eru óhrædd við að nota skemmtilega liti sem að við auðvitað elskum.
Musse & cloud Winy
– Brúnt
– Ekta leður að utan
– Fóður að innan
– Mjúkt innlegg
– Gúmmísóli
– Lítil númer
– Hæll 8 cm
Geggjuð stígvél með háum hæl og 2,5 cm platformi. Stílhreint snið, kassalaga tá og aðsniðin um ökkla. Ótrúlega flott á fæti og fallegur litur. Þetta eru lítil númer svo að við mælum með að taka númeri stærra en venjulega.