Nature footwear er lítið danskt fyrirtæki sem að sérhæfir sig í þægilegum skófatnaði. Þau eru gagnsæ, eru með umhverfisvæna starfshætti og taka gæði fram yfir magn. Hvert par er framleitt af umhyggju alveg frá fyrstu saumum þar til því er pakkað í kassa og þú finnur það þegar að þú prófar þá. Skórnir eru allir handgerðir í Portúgal af reyndu og færu fólki og eru um hundrað hendur sem að koma að framleiðslu hvers skópars. Við erum ótrúlega gölð að fá Nature Footwear í flóruna okkar í Apríl og kynna þetta frábæra merki fyrir Íslendingum.
Nature Footwear Asta
36.990kr.
– Svart
– Krómfrítt leður að utan
– Ekta ull að innan
– OnSteam® innlegg
– Náttúrulegur gúmmísóli
– Frekar litlar stærðir
– Sóli 2 cm
Dásamlega mjúkir og sætir skór frá danska merkinu Nature Footwear, handgerðir í Portúgal. Nature Footwear huga að sjálfbærni og passa að þau geri sitt besta fyrir umhverfið í framleiðslunni. Þessi týpa er signature skórinn frá þeim sem að þau eru þekkt fyrir. Við elskum stílinn á þeim, smá svona mokkasíu fílingur. Svakalega mjúkt og gott leður og ekta ull að innan sem að hlýjar fótunum í vetur.