Nature footwear er lítið danskt fyrirtæki sem að sérhæfir sig í þægilegum skófatnaði. Þau eru gagnsæ, eru með umhverfisvæna starfshætti og taka gæði fram yfir magn. Hvert par er framleitt af umhyggju alveg frá fyrstu saumum þar til því er pakkað í kassa og þú finnur það þegar að þú prófar þá. Skórnir eru allir handgerðir í Portúgal af reyndu og færu fólki og eru um hundrað hendur sem að koma að framleiðslu hvers skópars. Við erum ótrúlega gölð að fá Nature Footwear í flóruna okkar í Apríl og kynna þetta frábæra merki fyrir Íslendingum.
Nature Footwear Mona
23.990kr.
– Gyllt / marglitt
– Ekta leður að innan og utan
– OnSteam® innlegg
– Náttúrulegur gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– Sóli 2 cm
Ótrúlega mjúkir sandalar með sveigjanlegum gúmmísóla. Fallegir úr mjúku leðri með teygjum í kross yfir rist, band fyrir aftan hæl og yfir tær. Haldast vel á og þægilegt að komast í þá.