38.990kr.
Forpöntun – sendingin er væntanleg til okkar 8-10.okt og pantanir verða afhendar um leið og þeir koma til okkar.
– Brúnt
– Ekta leður
– OnSteam® innlegg
– Náttúrlegur gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– Sóli 3 cm
Dásamlega mjúkir og flottir skór frá danska merkinu Nature Footwear, handgerðir í Portúgal. Nature Footwear huga að sjálfbærni og passa að þau geri sitt besta fyrir umhverfið í framleiðslunni. Þessir skór eru í miklu uppáhaldi hjá okkur, þetta er ný týpa hjá Nature Footwear og þeir eru ekkert smá mjúkir og þægilegir að ganga á, alveg fótlaga með rennilás að innanverðu.
Nature footwear er lítið danskt fyrirtæki sem að sérhæfir sig í þægilegum skófatnaði. Þau eru gagnsæ, eru með umhverfisvæna starfshætti og taka gæði fram yfir magn. Hvert par er framleitt af umhyggju alveg frá fyrstu saumum þar til því er pakkað í kassa og þú finnur það þegar að þú prófar þá. Skórnir eru allir handgerðir í Portúgal af reyndu og færu fólki og eru um hundrað hendur sem að koma að framleiðslu hvers skópars. Við erum ótrúlega gölð að fá Nature Footwear í flóruna okkar í Apríl og kynna þetta frábæra merki fyrir Íslendingum.
Stærð | 37, 38, 39, 40, 41 |
---|