Núnoo Honey Buckle

24.990kr.

– Dökkgrænt
– Ekta rúskinn

Mál: L: 24 cm x H: 15 cm x D: 11 cm

Æðisleg taska sem að lokast með stórri spennu, tvö stór hólf ofan í töskunni og tvö rennd hólf. Svo eru tvö lítil hólf framan á töskunni sem að lokast með segli og eru með skrautspennu og setja mikinn svip á töskuna. Stutt band er á töskunni til að halda á henni og svo fylgir einnig stillanleg ól sem að hægt er að setja á hana og nota yfir öxlina. Mjúk og fullkominn taska sem að er hægt að nota dags daglega sem og við fínni tilefni.

Ekki til á lager

Flokkar: , ,

Núnoo er danskt töskumerki sem að var stofnað árið 2015 af systrunum Pia og Naja. Þær sjá um hönnun og framleiðslu Núnoo og eru einnig með ýmsa fylgihluti. Þær systur leggja mikla áherslu á gæði, sjálfbærni og notast við afgangs leður leður.
Núnoo er gælunafn Naja síðan að hún var ungabarn en það er grænlenst orð og þýðir lyktin af barninu.
Á þessum stutta tíma hefur Núnoo náð ótrúlegu flugi og er í dag selt í yfir 110 verslunum víða um heim.