Senso er hágæða skómerki frá Ástralíu sem stofnað var árið 1980. Á þremur áratugum hefur Senso tryggt sér sæti sem eitt helsta tískumerkið fyrir nýstárlega hönnun og stíl.
Skórnir frá Senso eru jafn þægilegir og þeir eru fallegir enda nota þau eingöngu bestu fáanlegu hráefni og meðhöndlun og völ er á svo að upplifun kaupandans sé sem best. Senso fæst aðeins í úrvals tískuverlsunum á borð við Illum og Harvey Nichols.
Það er mikill heiður fyrir okkur að fá að bjóða upp á Senso á Íslandi.
Senso Dana
– Svart
– Ekta leður að innan og utan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– 1,5 cm sóli
Fallegir sandalar með tveimur leðurböndum yfir ristina sem að fara í kross og annað fer á milli tásanna. Silfurlituð spenna er á hliðinni á öðru bandinu. Sniðið er mjög tímalaust og passa þeir bæði við afslappaðan hversdags klæðnað sem og fínni tilefni.