Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast lengi og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt að bjóða þetta frábæra merki á Íslandi.
Ten Points Alma
17.990kr.
– Koníaksbrúnt
– Ekta leður að innan og utan
– Leðurinnlegg
– Léttur polyurethane sóli (PU)
– Venjulegar stærðir
– Sóli 3 cm
Frábærir sandalar frá Ten Points, einstaklega mjúkir og léttir. Þykkt leðurband yfir ristina og band sem fer bakvið hæl og er stillanlegt um ökklann.. Leðrið er í gullflokki hjá Leather Working Group, sem tryggir úrvalsgæði. Stígðu inn í þægindi og tímalausa hönnun, þessa getur þú notað sumar eftir sumar.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|