– Svart
– Ekta leður að utan
– Létt fóður að innan
– Hrágúmmísóli
– Mjúkt fóðrað innlegg sem að hægt er að fjarlægja
– Venjulegar stærðir
– 3 cm hæll
Fallegir og einstaklega vandaðir leðurskór frá Ten Points. Leðrið er silkimjúkt og hrágúmmí-sólinn sömuleiðis. Teygjur eru í báðum hliðum og auðvelt er að smeygja sér í skóna, einnig eru þeir aðsniðnir aleg upp að ökklanum. Hællinn er klæddur með rúskinni sem að gefur skónum mjög mikið.
Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast lengi og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum mjög stolt af því að bjóða þetta frábæra merki á Íslandi.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|