Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast lengi og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt af því að bjóða þetta frábæra merki á Íslandi.
Ten Points Clarisse
– Sinnepsgult
– Ekta leður að innan og utan
– Mjúkt leðurinnlegg
– Gúmmísóli með leðurfaldi meðfram sóla
– Venjuleg stærð
– Rúmlega 5 cm hæll
Æðislegir og töffaralegir uppreimaðir skór frá Ten Points. Þessir skór eru fullkomnir fyrir íslenska veðráttu. Leðurfóðraðir með þykkum gúmmísóla sem gerir þá einstaklega mjúka og þægilega. Rennilás er á hliðinni svo auðvelt er að komast í þá. Sniðið og saumar á skónum gera þá einstaka á sama tíma og heildar útlitið er einfalt og klassískt.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|