25.990kr.
– Brúnt / hvítt
– Ekta leður að innan og utan
– Leðurinnlegg
– Gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– 2,5 cm sóli
Vandaðir strigaskór gæddir mjúku leðri, góðum gúmmísóla og ótrúlega þægilegu fótbeði. Rúskinnið gefur alltaf ákveðinn sjarma og svo er tungan úr hvítu leðri sem að kemur ótrúlega vel út. Fullkomnir stigaskór fyrir vorið sem að eru ekki of sportlegir og passa líka vel við fínni tilefni.
Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast lengi og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt að bjóða þetta frábæra merki á Íslandi.
| Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
|---|