Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast lengi og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt að bjóða þetta frábæra merki á Íslandi.
Ten Points Jenny
36.990kr.
– Svart
– Krómfrítt leður að utan
– Létt fóður að innan
– Færanlegt latex innlegg
– Mjúkur gúmmísóli
– Venjulegar stærðir
– 5,5 cm hæll
Æðislegir vetrarskór frá Ten Points úr vaxhúðuðu rúskinni sem að gefur fallega og skemmtilega áferð. Grófur góður gúmmísóli í brúnum lit gefur skemmtilega andstæðu við svart rúskinnið. Reimar að framan og rennilás að innanverðu. Þessi eru æði og við elskum þetta vintage útlit á leðrinu.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|