Ten Points Pandora

– Dökkbrúnt
– Krómfrítt leður að innan og utan
– Gúmmísóli
– Mjúkt leðurinnlegg
– Venjulegar stærðir
– 3 cm hæll

Fallegir og einstaklega vandaðir leðurskór frá Ten Points. Vinnsla á krómfríu leðri felst í umhverfisvænni framleiðsluaðferðum sem skilar sér í fallegri og lifandi áferð í hverju pari. Skórnir eru sérstaklega mjúkir að ganga á og hannaðir út frá háum viðmiðum þegar kemur að þægindum. Gott pláss er í tánni og þrengja þeir hvergi að.
Vinsæla Pandora sniðið er hér komið í hálf há stígvél með rennilás að innanverðu og reimum, svakalega fallegur litur.

Þessi vara er ekki til á lager og þvi ófáanleg eins og er.

Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Portúgal, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast lengi og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt að bjóða þetta frábæra merki á Íslandi.

Stærð

36, 37, 38, 39, 40, 41