– Svart
– Krómfrítt leður að innan og utan
– Ekta ull að innan
– Gúmmísóli
– Mjúkt leðurinnlegg
– Venjulegar stærðir
– 3 cm hæll
Fallegir og einstaklega vandaðir leðurskór frá Ten Points. Vinnsla á krómfríu leðri felst i umhverfisvænni framleiðsluaðferðum sem skilar sér í fallegri og lifandi áferð í hverju pari. Skórnir eru sérstaklega mjúkir að ganga á og hannaðir út frá háum viðmiðum þegar kemur að þægindum. Gott pláss er í tánni og þrengja þeir hvergi að.
Sniðið er einstaklega klassískt og ekta ull að innan. Rennilás að innanverðu og hankar að framan og aftan.
Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast lengi og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt að bjóða þetta frábæra merki á Íslandi.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|