Ten Points Pandora

– Gyllt
– Krómfrítt leður að innan og utan
– Gúmmísóli
– Mjúkt leðurinnlegg
– Venjulegar stærðir
– 3 cm hæll

Vinsæla chelsea sniðið er algjör klassík fyrir vorið. Fallegir og einstaklega vandaðir leðurskór frá Ten Points. Vinnsla á krómfríu leðri felst i umhverfisvænni framleiðsluaðferðum sem skilar sér í fallegri og lifandi áferð í hverju pari. Skórnir eru sérstaklega mjúkir að ganga í og hannaðir út frá háum viðmiðum þegar kemur að þægindum. Gott pláss er í tánni og þrengja þeir hvergi að. Þessir skór hafa verið einstaklega vinsælir hjá okkur á vorin og nú eru þeir komnir í þessum fallega gyllta lit og er sólinn mjög flottur úr endurunnu gúmmíi.

Þessi vara er ekki til á lager og þvi ófáanleg eins og er.

Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast vel og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt að kynna þetta frábæra merki fyrir Íslendingum.

Stærð

36, 37, 38, 39, 40, 41