Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast vel og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt að kynna þetta frábæra merki fyrir Íslendingum.
Ten Points Pandora
– Koníaksbrúnt
– Ekta leður að innan og utan
– Ljósir saumar
– Gúmmísóli
– Mjúkt leðurinnlegg
– Venjuleg stærð, nokkuð breiðir
– Rúmlega 3 cm hæll
Einsaklega fallegir skór úr sumarlínu Ten points. Skórnir einkennast af fallegu klassísku sniði og hvítum saumum sem gefa þeim sterkan karakter. Svört teygja báðum megin svo gott er að komast í þá, auk þess sem þeir eru ögn breiðari en önnur snið sem gerir þá sérstaklega þægilega. Skórnir eru úr leðri bæði að innan og utan og með gúmmísóla úr endurunnu gúmmíi svo sérstaklega mjúkt er að stíga í þá.