Ten points var stofnað árið 1983 og hvert einasta par frá Ten points er hannað og handgert í Evrópu, með sjálfbærum framleiðsluaðferðum og sanngjörnum viðskiptaháttum.
Ten Points stendur fyrir góða og vandaða skó með nútíma sænska hönnun og þægindi í fararbroddi. Skórnir eru klassískir og breytast lítið á hverju misseri og eru einnig þess vegna sjálfbærir því þeir endast lengi og detta ekki úr tísku.
Ten Points er í dag eitt af mest seldu skómerkjum í Skandinavíu og við erum stolt að bjóða þetta frábæra merki á Íslandi.
Ten Points Victoria
– Gull
– Ekta leður að innan og utan
– Leður innlegg
– Gúmmísóli
– Venjulegar stærðir, nokkuð breiðir
– 2,5 cm sóli
Vandaðir strigaskór gæddir mjúku leðri og með reimum. Dásamleg áferð einkennir skóna en þeir eru handburstaðir til að fá gamla áferð svo ekkert par er nákvæmlega eins. Þægilegir skór til að hoppa í við hvert tækifæri.
Stærð | 36, 37, 38, 39, 40, 41 |
---|